Gjaldskrá Leikskóla Fjallabyggðar


Eftirfarandi afslættir eru veittir af leikskólagjöldum. Ekki er veittur afsláttur af fæðisgjaldi:

  • Systkinaafsláttur er veittur vegna barna á forræði forráðamanns/manna sem hér segir, að því tilskildu að þau eigi sameiginlegt lögheimili í Fjallabyggð:
  • 50% afsláttur vegna 2. barns
  • 75%afsláttur vegna 3. barns
  • 100% afsláttur vegna 4. barns og þar umfram.
  • Systkinaafsláttur leikskóla og lengdrar viðveru í grunnskóla eru tengdir saman. Yngsta barn greiðir alltaf fullt gjald og afsláttur er mestur á elsta barni.
  • Einstæðir foreldrar fá 30% afslátt af leikskólagjaldi fyrsta barns.
  • Foreldrar með metna 75% örorku fá 30% afslátt af leikskólagjöldi fyrsta barns. Framvísa þarf útgefnum örorkuskírteinum frá Tryggingarstofnun ríkisins.
  • Lækkun á gjaldi kemur til framkvæmdar 1. dag næsta mánaðar eftir fravísun vottorðs eða viðeigandi gagna. Afsláttur fellur niður án fyrirvara uppfylli foreldrar ekki skilyrði afsláttar. Afslættir eru aldrei veittir aftur í tímann. Sjá nánar í reglum um umsóknir og innritun í Leikskóla Fjallabyggðar.

Leikskólagjöld og fæðisgjald skulu felld niður ef börn eru fjarverandi í 1 mánuð eða lengur vegna veikinda barns, að því tilskildu að veikindavottorð liggi fyrir. Að sama skapi er heimilt, að höfðu samráði við félagsþjónustu Fjallabyggðar, að fella niður leikskólagjöld ef félagslegar aðstæður valda langvinnum fjarvistum.

* Útfærsla skv. einingarverði vistunargjalds 4.178,4 pr/klst.

Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi með staðfestingu bæjarstjórnar Fjallabyggðar og samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar þann 27. nóvember og tekur gildi 1. janúar 2024.

Leikskólagjöld* 2024

Vistunargjöld

4 klst. 16.714 kr.

4,5 klst. 18.803 kr.

5 klst. 20.892 kr.

5,5 klst. 22.981 kr.

6 klst. 25.070 kr.

6,5 klst. 27.160 kr.

7 klst. 29.249 kr.

7,5 klst. 31.338 kr.

8 klst. 33.427 kr.

8,5 klst. 35.517 kr.


Máltíðir

Morgunverður 2.666 kr.

Hádegisverður 5.455 kr.

Síðdegisverður 2.666 kr.

Annað

Vistunartími ekki virtur (pr. skipti) 567 kr.