news

Leikskálar 30 ára

29 Ágú 2023

Það var haldið upp á afmæli Leikskála í dag. En 29. ágúst árið 1993 voru Leikskálar vígðir og eigum við því 30 ára afmæli. Húrra, húrra. Þegar Leikskálar tóku til starfa var leikskólinn þriggja deilda skóli, með ein deild sem var heilsdagsdeild, en tvær deildar voru tvísettar. Þá komu börn frá kl. 8 – 12 og annar hópur frá kl. 13:00 til 17:00. Árið 2016 var byggt við leikskólann og í dag eru deildirnar fimm, allar heilsdagsdeildir. Í tilefni dagsins drógum við fánann að húni, allar deildar söfnuðust saman úti og sungum við afmælissönginn og í leikskóla er gaman. Lögðum við síðan af stað í skrúðgöngu í kringum lóðina okkar.